Pönnsur…

Húsmaðurinn stakk af eldsnemma í morgun með ítölskum bissness manni sem hefur sest að í Aegeri. Við eigum þó von á Svavari aftur um hádegisbil. Vonandi. Förinni var heitið í svissneska vasahnífadalinn og allaleið upp á Grosse Mythen. Ekki fyrir lofthrædda. Ég  ætti náttúrulega að kasta svuntunni á mig og baka pönnsur fyrir fjallgöngugarpinn!

Stundum þegar sólin skín inn um gluggann og lýsir upp rykið í loftinu, langar mig óstjórnlega mikið í pönnukökur. Oft sé ég mömmu fyrir mér sveitta við eldavélina, sennilega er pabbi að hlusta á fréttirnar á RÚV eða lesa Tímann. Sólin hefur loksins náð að gæjast upp yfir fjallstoppana eftir langan vetur og nú læðist hún inn um eldhúsgluggann. Gufan, sem stígur upp af pönnunni þegar pönnukökurnar steikjast við háan hita, er sem í flóðlýsingu og magnar upp ilminn af bræddu smjörinu. Við hliðina á sjóðheitri pönnunni, staflast upp örþunnar kökunnar. Ég bíð við borðið með mjólkurglas, hræri í sykurkarinu og horfi á bræður mína stelast í eina og eina pönnuköku. Kannski var því öfugt farið, kannski stalst ég í pönnukökurnar og bræður mínir sátu stilltir við borðið, þó mér finnist það ólíklegt.

Pönnukökur, yndislega þunnar, bragðbættar með vanillu eða sítrónudropum. Oft rúllaðar upp með sykri, eða bornar fram í himinháum stöflum, eða í þríhyrningum fylltum með sultu og rjóma. Bestar finnst mér þær með sykri og sítrónu.

Ég held að mamma hafi aldrei notað uppskrift, hræði saman soppuna eftir minni og tilfinningu. Fyrir mér er það of áhættusamt, ég notast við hann Jóa Fel! Hráefninu skellt í matvinnsluvélina sem er látin ganga þar til blandan er tilbúin. Engin sérstök kúnst, engar vangaveltur um hvort betra sé að hræra rangsælis eða réttsælis.

Já, ég ætti að baka pönnukökur.

This entry was posted in Uncategorized and tagged , , , , . Bookmark the permalink.

2 Responses to Pönnsur…

  1. Birna H. Kristinsdottir says:

    Sæl Guðrún mín, Þetta var ansi oft dass hjá mér. En mamma mín bkaði heimsins bestu pönnukökur,og það er eins og mig minni að mágur minn segði alltaf þetta eru nú bara pönnukökubræður hjá systrum enda bara dass hjá okkur haha.

  2. Áslaug says:

    Myndræn lýsing hjá þér Guðrún, sé ykkur fyrir mér í eldhúsinu fyrir vestan í Bíldudalsblíðu með febrúarsólargeislana dansandi á borðum og pönnsuilminn leggur út um opinn gluggann………
    Flott þetta fjall sem Svavar og sá ítalski ætluðu á,- fengu þeir svo pönnsur ?

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s